menning og tungumál, stig a2 - b1 í evrópska tungumálarammanum
Samþykkt af skóla
2
3
Áfanginn er fyrir utan stundatöflu en ætlast er til að nemendur mæti í verkefnatíma einu sinni í viku í munnlega æfingu ásamt heimavinnu. Í fasta verkefnatímanum er einungis töluð spænska og áherslan lögð á aukna munnlega færni nemenda í spænsku. Fyrir utan verkefnatímann vinna nemendur fjölbreytt verkefni sjálfstætt sem þau skila til kennara. Markmiðið er að auka orðaforða, þjálfa hlustun og lestur og auka málfræðifærni. Þessi áfangi er einnig hugsaður til að brúa smá bilið fyrir frekara nám í spænsku.
SPÆN1ÞR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grundvallaruppbyggingu þjóðfélaga þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál
ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta menninguna í þeim löndum þar sem tungumálið er notað og geti tengt þau eigin samfélagi og menningu
orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins, þ.m.t. orðasamböndum og þverfaglegum orðaforða
notkun tungumálsins til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins bæði munnlega og skriflega
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja mál sem talað er með mismunandi hreim og við mismunandi aðstæður sem og skilja algengustu orðasambönd sem eru einkennandi fyrir talað mál
lestri margs konar gerða af textum og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir því hverrar gerðar textinn er
taka virkan þátt í samskiptum á viðeigandi hátt og beita málfari við hæfi
tjá sig skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér og undirbúið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja daglegt mál, svo sem samræður og fjölmiðlaefni, hvort sem hann þekkir umræðuefnið eða ekki
tileinka sér efni ritaðs texta og hagnýta á mismunandi hátt
leysa ýmis mál sem upp koma í samskiptum og haga orðum sínum í samræmi við aðstæður
eiga frumkvæði í samræðum og bregðast við óvæntum spurningum og athugasemdum
skrifa læsilega texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín
Leiðsagnarnám. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina og þátttaka í munnlegum æfingum.