Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1634556089.37

    Ferðir á eigin vegum I
    EIVE2GR05
    1
    Ferðir á eigin vegum
    eigin vegum, ferðir, fjallaferðir, óbyggðir
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er áherslan á sjálfstæði nemenda við að afla sér reynslu og færni í fjalla- og óbyggðaferðum. Nemandi fer í styttri ferðir á eigin vegum sem hann skipuleggur sjálfur.
    GÖNG1GR05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnþáttum varðandi skipulag ferða og viðeigandi búnaði
    • kortalestri, áttavita og GPS
    • aðhlynningu í styttri ferðum
    • eigin styrkleikum og takmörkunum
    • mismunandi aðstæðum í óbyggðum og fjalllendi og viðbrögðum við þeim
    • tækifærum til fjallamennsku, hollrar útivistar og ferðalaga í nærumhverfi sínu
    • mikilvægi þess að ganga vel um landið
    • rötun og leiðarvali í fjalllendi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina helstu þætti við skipulag og undirbúning fjalla- og óbyggðaferða
    • rata með hjálp áttavita og GPS
    • huga vel að sjálfum sér og öðrum í ferðum
    • meta eigin styrkleika og takmarkanir
    • takast á við mismunandi aðstæður í óbyggðum
    • ganga vel um landið
    • velja milli mismunandi leiða sem henta hverju sinni til útivistar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • útbúa raunhæfa ferðaáætlun fyrir styttri ferðir
    • geta tekið ákvarðanir miðað við eigið líkamsástand, staðhætti og aðstæður
    • geta stundað fjölbreytta útivist á öruggan hátt
    • rata af öryggi um ókunnar slóðir
    • meta aðstæður á raunhæfan hátt
    • undirbúa, fara í, skrá og meta eigin ferðir og geta dregið lærdóm af því
    • ígrunda eigin ferðir
    • geta valið og farið í fjallaferðir við hæfi
    • leggja mat á hættur og stýra mögulegum áhættuþáttum
    • geta notið þess að vera á fjöllum
    Símat með áherslu á leiðsagnarmat sem byggir á vinnu nemenda. Ferilbók í tengslum við verk- og vinnustaðanám þar sem við á.