Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1635349893.26

    Vöðvafræði
    VOHR2VF05
    2
    Vöðva- og hreyfifræði
    Vöðvafræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    í þessum áfanga er farið í heiti og hlutverk vöðva, liða, liðbanda, sina og beina. Farið verður yfir uppbyggingu beinagrindar, tegundir liða og áhersla á upptök og festur vöðva. Fjallað verður um samstarf vöðva og liðamóta við framkvæmd hreyfinga. Fjallað verður um skurði, helstu áttar- og hreyfihugtök og snúningsöxla og notkun þeirra í hreyfingu.
    Líffæra- og lífeðlisfræði 1 og 2
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Upptökum og festum beinagrindarvöðva, heiti þeirra og virkni um liðamót.
    • Uppbyggingu og virkni liða líkamans.
    • Heiti beina og staðsetningu þeirra í beinagrind og tengingu við upptök og festur vöðva.
    • Uppbyggingu líkamans og áhrif á líkamsstöðu og hreyfingu.
    • Áttar- og hreyfihugtökum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Miðla upplýsingum um staðsetningu, upptök, festu og virkni beinagrindarvöðva til skjólstæðinga.
    • Framkvæma grunnlíkamsstöðugreiningu og tengja hana við vöðva líkamans.
    • Miðla upplýsingum um starf liða og beina.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Útskýra fyrir skjólstæðingum sínum starf vöðva í hreyfingum.
    • Tengja saman starf vöðva og hreyfingu liða.
    • Útskýra fyrir skjólstæðingum heiti beina og uppbyggingu beinagrindar.
    • Afla sér frekari upplýsinga um starfsemi stoðkerfisins.
    Gæta þarf að námsmat meti þá þekkingu, leikni og hæfni sem skilgreind er í öllum viðmiðum áfangans. Lágmarkseinkunn er 7.