Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1636045319.58

    Íþróttameiðsli og sjúkdómar
    ESÞJ3ÍS05
    1
    Einka- og styrktarþjálfun A
    Íþróttameiðsli og sjúkdómar
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Farið verður yfir helstu meiðsli sem upp geta komið hjá íþróttafólki við æfingar og keppni. Einnig verður farið í algeng stoðkerfisvandamál og ýmsa sjúkdóma meðal almennings, s.s. vefjagigt og þunglyndi, og jákvæð áhrif þjálfunar þar á. Farið verður í forvarnir og viðbrögð við íþróttameiðslum og hvenær vísa eigi skjólstæðingi til annarra fagaðila.
    Vöðva- og hreyfræði (VOHR2VF05_2 og VOHR3VF10_2), íþróttalífeðlisfræði (ÍÞLE3ÞÍ05_2)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Helstu meiðslum sem verða við æfingar og keppni s.s. höfuðhögg, vöðvatognanir, beinbrot, liðhlaup og sinavandamál.
    • Hvernig er best að bregðast við íþróttameiðslum.
    • Helstu áhættuþáttum íþróttameiðsla.
    • Meiðslahættu við einka- og styrktarþjálfun.
    • Hlutverki einka- og styrktarþjálfunar sem forvörn við meiðslum og í endurhæfingu.
    • Helstu álagsmeiðslum í þjálfun.
    • Algengum stoðkerfisvandamálum meðal almennings s.s. brjósklos, slitgigt og axlamein.
    • Jákvæðum áhrifum þjálfunar á ýmsa sjúkdóma s.s. vefjagigt, þunglyndi, kvíða og offitu.
    • Þeim óvæntu aðstæðum sem geta komið upp við einka- og styrkarþjálfun s.s. áverkar, flogaköst, sykurfall o.þ.h.
    • Helsta hlutverki og takmörkunum teipinga.
    • Áhrifum meiðsla á andlega heilsu íþróttafólks.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Beita fyrstu hjálp við meiðslum og þeim óvæntu aðstæðum sem geta komið upp við æfingar.
    • Framkvæma öryggisathugun á æfingastað m.t.t. slysahættu.
    • Framkvæma teipingar til að koma í veg fyrir frekari meiðsli hjá skjólstæðingi.
    • Búa um áverkasvæði við skyndiáverka.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Gera sér grein fyrir hvenær vísa þarf skjólstæðingi í hendur annarra fagaðila.
    • Gera sér grein fyrir ástandi skjólstæðings m.t.t. meiðsla og sjúkdóma og tengja við gerð þjálfunaráætlunar.
    • Geri sér grein fyrir og geti rökstutt eigið val á teipingu og viðbrögðum við langvarandi meiðslum og óvæntum áverkum sem upp geta komið við þjálfun.
    Námsmat tekur tillit til allra þátta námsins með tilliti til þekkingar-, leikni- og hæfniviðmiðum áfangans. Lágmarkseinkunn er 7.