Í áfanganum er farið í ýmsar vörur og hjálpartæki sem sjúklingar sækja til apóteka, einkum sykursýkissjúklingar. Farið er í þvagstrimla og ýmis próf sem hægt er að kaupa og mælingar sem hægt er að láta gera í apótekum. Fjallað er um öryggi barna og ýmsar vörur sem notaðar eru til forvarna slysum á börnum og einnig er unnið með orsakir og afleiðingar helstu sjúkdóma í munni og tönnum og vörur er snúa að tannheilsu. Greiðsluþátttaka SÍ á ýmsum vörum er einnig til umfjöllunar ásamt kröfum um innhald í skipskistum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
vörum sem sykursjúkir og aðrir hópar sækja til apóteka
þvagstrimlum, uppbyggingu og töku þvagprufa
blóðsykursmælum og - strimlum, insúlínpennum og nálum
ýmsum prófum sem hægt er að kaupa og/eða láta framkvæma í apóteki
öryggisþáttum fyrir börn, forvarnaraðgerðum og öryggisbúnaði
orsök og afleiðingu tannátu, tannvegssjúkdóma og munnvatnsskorts
tannheilsuvörum og efnum
greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands í prófefnum, mælitækjum og fleiru.
reglugerð um skipskistur
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa af þvagprufum og leiðbeina við val á þvagstrimlum
mæla blóðsykur með blóðsykursmælum, handleika insúlínpenna og nálar
framkvæma ýmis próf sem standa sjúklingum til boða í apótekum
kynna öryggisbúnað fyrir börn
gefa upplýsingar um hjálpartæki til munnhirðu og fyrirbyggjandi aðgerða gegn tannátu
nýta sér þekkingu um tannheilsu í raunhæfu umhverfi
reikna út hlut einstaklings í kaupum á ýmsum prófefnum, mælitækjum og fleiru
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
miðla upplýsingum til einstaklinga sem leita aðstoðar í apótekum varðandi ýmis mælitæki, mælingar, munnhirðu og tannheilbrigði
upplýsa og leiðbeina foreldrum um forvarnir og öryggisbúnað fyrir börn