Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Vigrar, hornaföll, ákveður, hringir og stikun
Vigrar, hnitarúmfræði og rökfræði., hornaföll, keilusnið
Í áfanganum verður farið í: vigra, hornaföll, þríhyrninga, ákveður, hringi og stikun.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- vigrum og ákveðum
- hornaföllum og hornafræði þríhyrninga
- jöfnu hrings og línu
- stikun hrings og línu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota skilgreiningar og reglur til að finna jöfnur og stikun fyrir línu og hring
- geta beitt vigrum, ákveðum og hornaföllum til að leysa verkefni
- beita stærðfræðilegri framsetningu á lausnum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera grein fyrir einkennum mismunandi jafna
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
- velja þær að ferðir sem við eiga hverju sinni til þess að leysa verkefni og beita þeim rétt
- skrá lausnir sínar skipuleg og útskýra þær skilmerkileg fyrir öðrum
- geta fylgt stærðfræilegum röksemdafærslum og skilja þær
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá