Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
strjál stærðfræði
Í áfanganum er unnið með helstu viðfangsefni og aðferðir strjállar stærðfræði, svo sem talnafræði, netafræði, vensl, rökfræði og talningarfræði.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- deilanleika heilla talna
- leifaflokkum
- talnaritun
- reikniritum
- netafræði
- venslum
- rökfræði
- talningarfræði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota reiknirit Evkíðs
- færa á milli talnakerfa
- vinna með net
- tengja saman vensl og net
- nota algengar talningarreglur
- þekkja nauðsynleg og nægjanleg skilyrði
- beita stærðfræðilegri framsetningu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- takast af öryggi á við stærðfræðileg verkefni
- geta skráð lausnir sínar skýrt og skilmerkilega
- hagnýtt sér stærðfræðilega þekkingu sína til ákvarðanatöku í sérhæfum verkefnum
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
- velja þær aðferðir sem við eiga hverju sinni til að leysa verkefni og beita þeim rétt
- skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega fyrir öðrum
- fylgja röksemdafærslum og skilja þær
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.