Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1637658519.07

    Almenn rekstrarhagfræði
    HAGF2AR05
    17
    hagfræði
    almenn, rekstrarhagfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um rekstur fyrirtækja og umhverfi þeirra. Fjallað er um grunnatriði hagfræðinnar og skilgreiningar á mismunandi skipulagsheildum. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist yfirsýn yfir fyrirtæki sem skipulagsheild og hvernig það þrífst í samkeppni við önnur fyrirtæki.
    STÆR2FJ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grundvallarhugtökum hagfræðinnar skorti, vali og fórnarkostnaði
    • hugtökunum framboð og eftirspurn
    • helstu framleiðsluþáttum
    • helstu kostnaðarhugtökum
    • muninum á beinum og óbeinum kostnaði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja hugtökin tekjur, kostnaður og afkoma
    • nota aðferðir við útreikning framlegðar og rekstrarjafnvægis
    • þekkja mismunandi rekstrarform fyrirtækja
    • reikna út eigið verð afurðar (sjálfskostnað)
    • gera fjárhagsáætlun og skilja hagnýtingu fyrir stjórnendur fyrirtækja
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja hvernig verðmæti myndast innan fyrirtækja og hvernig þeim er ráðstafað ...sem er metið með... verkefnum og prófum
    Nemendur þurfa að vinna mörg verkefni í áfanganum þar sem kennslan fer aðallega fram með verkefnavinnu nemenda. Námsmatið er mat á þessari vinnu ásamt tímaprófum og lokaprófi.