Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1638175698.79

    Klifur á eigin vegum II
    EIVE2KF01
    4
    Ferðir á eigin vegum
    klettaklifur, ísklifur
    Samþykkt af skóla
    2
    1
    Í áfanganum er áherslan á sjálfstæði nemenda við að afla sér reynslu og færni í ís- og klettaklifri. Miðað er við að nemandi fari í styttri og lengri ferðir á eigin vegum sem hann skipuleggur sjálfur. Nemandi skal leitast við að stunda fjölbreytt klifur: innanhúss, í klettum eða á jökli eins og veður og aðstæður leyfa.
    EIVE2KG01
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • vali klifurleiða við hæfi
    • viðeigandi öryggisbúnaði eftir viðfangsefni
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • hita upp fyrir klifur
    • teygja á fyrir og eftir klifur
    • þjálfa styrk og úthald fyrir klifur
    • beita góðri klifurtækni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • stunda mismunandi gerðir klifurs sér til líkamsræktar
    Símat með áherslu á leiðsagnarmat sem byggir á vinnu nemenda. Ferilbók í tengslum við verk- og vinnustaðanám þar sem við á.