Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1639394926.95

    Inngangur að rekstri
    MFSF2RM05
    1
    Markaðsfræði og stofnun fyrirtækja
    Rekstur, markaðsmál
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum áfanga er farið í grunnatriði varðandi stofnun og rekstur lítilla fyrirtækja. Lögð er áhersla á að nemendur þrói eigin hugmynd í átt að viðskiptalíkani. Grunnatriði markaðssetningar kynnt og farið vel í gerð markaðsáætlunar og rekstraráætlunar sem er grunnur að viðskiptaáætlun. Nemendur skila af sér fullbúinni viðskiptaáætlun í lok áfanga. Þá kynnast nemendur mismunandi rekstrarformum fyrirtækja og læra um skattalegar skyldur.
    Hagnýt stærðfræði.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Markaðssetningu lítilla fyrirtækja.
    • Stofnun fyrirtækja.
    • Rekstri fyrirtækja.
    • Einföldum efnahagsreikningi.
    • Einföldum rekstrarreikningi.
    • Helstu rekstrarformum fyrirtækja.
    • Helstu skattalegum skyldum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Útbúa vöru/þjónustu útfrá hugmynd.
    • Setja upp áætlanir tengdar rekstri fyrirtækja.
    • Reikna út stærðir tengdar rekstri fyrirtækja.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Stofna fyrirtæki upp á eigin spýtur.
    • Gera viðskiptalíkan.
    • Útbúa markaðs-, auglýsinga- og kynningaráætlun út frá viðskiptahugmynd.
    • Vera ábyrgur fyrir skilum á greiðslu á þeim gjöldum sem fylgja rekstri.
    • Sýna sjálfstæð vinnubrögð við gerð á viðskiptalíkani.
    • Vinna fullnægjandi viðskiptaáætlun sem nýtist bæði við markmiðasetningu og umsóknir fyrir fjárveitingum.
    Gæta þarf að námsmatið meti þá þekkingu, leikni og hæfni sem skilgreind er í öllum viðmiðum áfangans. Lágmarkseinkunn er 7.