Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1639647827.92

    Sértækar þjálfunaráætlanir
    ÆFÞJ3SÞ05
    3
    Æfingakerfi þjálfunar
    Sértækar þjálfunaráætlanir
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í þessum áfanga verður farið í þjálffræði og gerð þjálfunaráætlana fyrir ákveðna hópa samfélagsins. Áhersla verður lögð á hvernig haga skal þjálfun barna og ungmenna, aldraðra og þjálfun á meðgöngu. Einnig verður farið í þjálfun hjartveikra, þeirra sem þjást of offitu, sykursýkissjúklinga sem og þeirra sem glíma við sjúkdóma í öndunarfærum.
    Vöðva- og hreyfifræði (VOHR2VF05_2 og VOHR3VF10_2), íþróttalífeðlisfræði (ÍÞLE3ÞÍ05_2) og æfingakerfi þjálfunar (ÆFÞJ3ÆF05(ES)_2)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Mikilvægi þjálfunaráætlunar í að ná þjálfunarmarkmiðum.
    • Þeim fjölmörgu þáttum sem taka þarf tillit til við gerð þjálfunaráætlana.
    • Einkennum sjúkdóma sem leggjast á hjarta- og æðakerfið og öndunarfærin.
    • Hvað einkennir ákveðna samfélagshópa m.t.t. gerð þjálfunaráætlana.
    • Þekki afleiðingar offitu og hver áhrif hennar á gerð þjálfunaráætlana eru.
    • Útskýra einkenni sykursýkis.
    • Lýsa ferli æðakölkunar.
    • Lýsa þekktum vandamálum sem hrjá konur í íþróttum og hvernig einka- og styrktarþjálfari getur komið til hjálpar.
    • Orsökum sjúkdóma í öndunarfærum s.s. astma.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Skrá þjálfunaráætlanir á tölvutæku formi.
    • Rita skýrar og skilmerkilegar þjálfunaráætlanir fyrir ólíka hópa.
    • Miðla upplýsingum þjálfunaráætlana til skjólstæðinga.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Hanna þjálfunaráætlun frá grunni byggða á þörfum, getu og markmiðum viðkomandi skjólstæðings.
    • Aðlaga þjálfunaráætlanir að breyttum aðstæðum, s.s. vegna meiðsla, umhverfis o.þ.h.
    • Aðlaga þjálfunaráætlanir að dagsformi viðkomandi skjólstæðings.
    • Gera sér grein fyrir ábyrgð sinni á gæðum þjálfunaráætlana og geta rökstutt allar breytingar sem gerðar eru á henni.
    • Gera sér grein fyrir mikilvægi þess að aðlaga erfiðleikastig þjálfunar að markmiðum.
    • Lýsa ólíkum viðbrögðum mismunandi hópa við þjálfunaráreiti s.s. börn, aldraðir, þungaðar konur og þeirra sem glíma við offitu.
    • Gera sér grein fyrir þeim varúðarráðstöfunum sem þarf að grípa til þegar börn og ungmenni eru í þjálfun.
    • Útskýra aldurstengdar breytingar á súrefnisupptöku, styrk, líkamssamsetningu og liðleika.
    • Gera grein fyrir hlutverki þjálfunar sem meðferð og forvörn við sjúkdómum s.s. hjarta- og æðasjúkómum og beinþynningu.
    • Geti útbúið og rökstutt þjálfunaráætlun fyrir þá sem glíma við hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki, öndunarfærasjúkdóma og offitu.
    • Rökstyðja hvernig hreyfing getur verið hluti meðferðar sykursýkissjúklinga.
    • Geri sér grein fyrir áhættuþáttum sem fylgja þjálfun veikra og hvenær skal vísa skjólstæðingi til læknis.
    Gæta þarf að námsmatið meti þá þekkingu, leikni og hæfni sem skilgreind er í öllum viðmiðum áfangans. Lágmarkseinkunn er 7.