Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1642511927.56

    Lífsnám með áherslu á andlegt og líkamlegt heilbrigði og velferð.
    LÍFS1LB01(B)
    116
    lífsleikni
    Geðheilbrigði, hreyfing og næring
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    B
    Meginefni áfangans er geðheilbrigði, hreyfing og næring. Nemendur kynnast ýmsum þáttum sem tengjast geðheilsu, geðvernd og forvörnum. Unnið verður með mikilvægi góðra lifnaðarhátta s.s. hreyfingu, næringu og svefn og tengsl þeirra við geðheilsu fólks. Einnig verður lögð áhersla á þá þætti sem stuðla að góðri líðan og eflingu sjálfsmyndar.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Áhrifum mataræðis á líkama og sál
    • Áhrifum hollra lífshátta, mataræðis, hvíldar, svefns, hreyfingar og ákveðins skipulags á eigið geðheilbrigði
    • Einkennum andlegrar vanlíðunar s.s. kvíða og þunglyndi
    • Þeim úrræðum sem nemendur geta leitað í þegar þeim líður illa
    • Áhrifum góðrar sjálfsmyndar og samskipta á eigið geðheilbrigði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Velja sér fjölbreytta næringu
    • Viða að sér fræðilegu efni um geðheilbrigði
    • Fara eftir ráðleggingum varðandi holla lífshætti, fæðuval og hreyfingu
    • Leita sér aðstoðar þegar vanlíðan gerir vart við sig
    • Eiga gefandi félagsleg samskipti við aðra
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Geta greint gæði og hollustu matvæla
    • Velja leiðir sem styrkja og efla gott geðheilbrigði
    • Geta brugðist við einkennum hjá sjálfum sér eða félögum þegar andlegra erfiðleika verður vart og leita aðstoðar eftir þörfum
    • Nota fjölbreytta hreyfingu sér til heilsubótar
    • Vera umburðarlyndur gagnvart mismunandi getu einstaklinga
    • Ræða opinskátt um heilbrigt líferni og geðheilsu
    Leiðsagnarmat; verkefnaskil og virkni. Sjálfsmat og jafningjamat.