Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1643016627.55

    Skíðakennsla
    SKÍK2KE05(KE)
    1
    SKÍÐAKENNSLA
    kennsla, skíði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur. Verklegi hlutinn fer fram í Oddsskarði frá hádegi föstudegi – sunnudags. Nánari dagsetning kemur síðar. Í verklega hlutanum færist athyglin á skíðafærnina og getu til að sýna og kenna tækni á lægri getu. Nemendur fara í gegnum hvert þrep fyrir sig og eru bæði þátttakendur og leiðbeina hvort öðru. Farið verðu í kennslu barna og fullorðna. Hvernig hópkennsla og einkakennsla er framkvæmd. Nemendur fá einnig færi á að kenna á vettvangi. Í bóklega hlutanum er farið í gegnum þrep skíða-/brettakennslu og leiðir til þess að auka færni í þeim með áherslu á aðferðafræðilegar framfarir, kennslufræði og tæknileg grunnatriði skíðaiðkunnar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • skipulagi skíða-/brettakennslu
    • þrepum skíða-/brettakennslu
    • helstu grundvallar hugtökum skíða-/brettakennslu
    • mismuni kennslu byrjenda og lengra komna
    • upphitun, liðleika og stöðugleika æfingar
    • leiðum til þess að auka færni
    • snjóalögum og hættur tengdum þeim
    • reglum skíðasvæða og alþjóðlegra skíðareglna
    • sögu og uppruna skíða-/brettakennslu
    • mismunandi stigum skíðabrauta
    • skíðabúnað
    • fyrstu viðbrögð á vettvangi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • framkvæma stigin í kennslu
    • geta leiðrétt villur
    • geta útfært tæknina sjálfur
    • framkvæma upphitunaræfinar
    • framkvæma liðleikaæfingar
    • framkvæma stöðugleikaæfingar
    • geta metið getu annarra
    • nota fjölbreyttar aðferðir í kennslu
    • geta metið slys og viðbrögð við þeim
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • til að taka taka þátt og/eða séð um kennslu byrjenda á skíðum/bretti. ...sem er metið með... verklegri kennslu á skíðasvæði
    Verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Verklegt próf í raun kennslu. Verklegt próf í skíða/brettatækni