Áfanginn er ætluðum nemendum sem hafa annað móðurmál en íslensku og hafa dvalið í lágmark eina önn á Íslandi. Áfanginn samsvarar A1 – A2 í evrópska tungumálarammanum. Í áfanganum er lögð áhersla á íslenskan orðaforða sem tengist nærumhverfi nemenda, framburð, hlustun, lestur og ritun. Unnið er með alla færniþætti jafnt því markmiðið er að nemendur geti skilið og tjáð sig á íslensku um sjálfa sig og nærumhverfi sitt. Málnotkun sem tengist daglegu málið, þ.m.t. sagnbeygingar í nútíð og þátíð.
A.m.k. ein önn í íslenskum framhaldsskóla eða 1 ár í íslenskum grunnskóla
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
orðaforða og málnotkun sem tengist nærumhverfi og daglegum athöfnum
lestur stuttra texta um kunnugleg málefni
frásögn í nútíð og þátíð
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa einfalda texta og greina innihald
segja frá eigin athöfnum í nútíð og þátíð
tjá sig í ræðu og riti um athafnir og atriði sem tengjast nærumhverfi þeirra
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá sig á einfaldri íslensku um eigin athafnir og nærumhverfi sitt
fara eftir munnlegum og skriflegum leiðbeiningum
segja frá og skilja þegar aðrir segja frá eigin athöfnum