Lýsing: Áfanginn er ætluðum nemendum sem hafa annað móðurmál en íslensku og tala og skilja íslensku sæmilega en þurfa frekari undirbúning í íslensku til að stunda nám í framhaldsskóla. Áfanginn samsvarar B2 í evrópska tungumálarammanum. Í áfangum er lögð áhersla á að halda áfram að undirbúa nemendur í að tileinka sér eðlilega íslenska málnoktun og byggja upp flóknari orðaforða og málnotkun. Uppbygging ritunarverkefna
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
lestri fjölbreyttra texta
völdum kvikmyndum og bókmenntatextum
uppbyggingu ritunarverkefna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
rýna í texta og kvikmyndir
beita mismunandi lestraraðferðum á mismunandi texta
tjá sig munnlega og skriflega á eðlilegri íslensku um málefni sem þeir kynna sér
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
færa rök fyrir máli sínu skriflega og munnlega
gera grein fyrir efni sem þeir hafa kynnt sér munnlega og skriflega skv. reglum sem þeir hafa lært
tjáð sig skýrt á eðlilegri íslensku um flóknari málefni
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá