Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1643199816.7

    Þjálffræði 1
    ÍÞRF3ÞF05
    13
    íþróttafræði
    lífstíll og heilsa, viðbragðs og hraðaþjálfun, Þolþjálfun, þrekpróf
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er farið ýtarlega í þolþjálfun allt frá fræðilegum þáttum til líkamlegra æfinga og áætlunargerðar til lengri og skemmri tíma. Framkvæmd og mikilvægi þrekprófa fyrir íþróttamenn. Viðbragðs og hraðaþjálfun allt frá því að skilja mikilvægi mikils hraða í keppni og til æfingaáætlana , nemendur fara yfir grunnatrið í orkubúskap líkamans s.s. næringarefnin og notkun mismunandi orkukerfa. Einnig verður farið í mikilvægi góðs lífstíls og heilsu í okkar samfélagi. Farið verður í íþróttasögu. Áfanginn er bæði bæði bóklegur og verklegur. Áfanginn byggist upp á fyrirlestrum og verkefnavinnu nemenda sem er bæði fræðileg og yfirfærslu yfir í verklegaræfingar og áætlanir.
    ÍÞRF2BH05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þolþjálfun og aðferðum til að byggja þolið upp
    • mikilvægi prófa fyrir íþróttamenn
    • orkubúskap líkamans
    • viðbragðs og hraðaþjálfun
    • heilbrigðum lífstíl og góðri heilsu almennings
    • atburðum í íslenskri íþróttasögu
    • mikilvæg þess að leita sér faglegra upplýsinga á vefmiðlum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota ýmsar aðferðir til þolþjálfunar fyrir ýmis þjálfnarstig
    • nota ýmis próf til að meta þjálfunarástand íþróttafólks
    • kynna sér valda þætti úr íslenskri íþróttasögu
    • beita ýmsum aðferðum til þolþjálfunar fyrir ýmis þjálfunarstig
    • leiðbeina fólki um hvað er heilbrigður lífstíll
    • búa til þjálfunaráætlanir
    • leita upplýsinga og nýta sér upplýsingatækni í verkefnavinnu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta byggt upp góða þolþjálfunar áætlun fyrir einstakling/hópa byggða á fræðilegri þekkingu
    • geta framkvæmt einföld þerkpróf til að meta þjáflunarástand íþóttamanns
    • geta byggt upp góða þjálfunaráætlun fyrir viðbragðs og hraða þjálfun á fræðilegri þekkingu
    • geta greint lífstíl hjá fólki og komið með hugmyndir um breytingar sem leiða til betri heilsu og líðan
    • geta greint frá atburðum í íslenskri íþróttasögu
    • lesa úr og meta upplýsingar sem koma fram á vefmiðlum
    Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metinn jafn óðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.