Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1643200537.7

    Þjálffræði 2
    ÍÞRF3ÞS05
    12
    íþróttafræði
    Styrktarþjálfun, liðleikaþjálfun, íþróttameiðsl og íþróttasálfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Farið verður ýtarlega í þjáflun styrk og snerpu. Nemendur fara í grunnatriði sem varða þjálffræði í styrktar- og snerpuþjálfun ýmisa hópa íþróttafólks. Læra að gera styrktar- og snerpu áætlanir. Læra að framkvæma ýmsar gerðir af styrktaræfingum. Farið verður yfir mikilvægi góðrar liðleikaþjálfunar, leiðir til að bæta liðleika og hvernig er hægt að framkvæma liðleika æfingar á einstaklingum. Farið verður ýtarlega í íþróttameiðsl og hvernig er hægt að fyrir byggja þau með æfingum og réttri þjálfun. Farið verður yfir grunnatriði í íþóttasálfræði og hvernig íþróttamenn byggja sig upp og þjálfa hugann til að vera tilbúnir þegar það kemur að stóru stundinni. Unnið verður stórt lokaverkefni í áfanganum. Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur. Áfanginn byggist upp á fyrirlestrum og verkefnavinnu nemenda sem er bæði fræðileg og yfirfærslu yfir í verklegaræfingar og áætlanir.
    ÍÞRF3ÞF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Styrktar og snerpuþjálfun
    • Liðleikaþjálfun
    • Íþóttameiðslum
    • Íþróttasálfræði
    • Þjálfun hugans
    • Mikilvægi vefmiðla varðandi upplýsinga öflun
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Beita mismunandi aðferðum til styrktar og snerpuþjálfun fyrir ólíka íþróttagreinar
    • Beita mismunadi aðferðum til liðleikaþjálfun og greina þörf á liðleikaþjálfun
    • Þekkja einkenni helstu íþróttameiðsla og viðbrögð við þeim
    • Þekkja helstu kenningar íþróttasálfræðinnar og aðferðir sem íþróttamenn beita til að ná sem bestum árangri
    • Leita upplýsinga af vefmiðlum og leggja mat á þær
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Geta búið til styrktar og snerpu áætlun fyrir ýmis stig þjálfunarstig og íþróttagreinar
    • Geta búið til liðleikaþjálfun sem byggist á greiningu liðleika
    • Geta þekkt helsu íþróttameiðsli og fyrirbyggjandi aðgerðir gegn þeim
    • Geta búið til áætlun sem inniheldur ráðlegginar varðandi þjálfun hugans og beitt ýmsum aðferðum til að ná betri árangri með andlegum aðferðum
    • Getað dregið saman fróðleik úr ýmsum áttum til að miðla þekkingu sinni
    • Vinna úr upplýsingum af vefmiðlum sem tengjast þjálfun og heilbrigði
    Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metinn jafn óðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.