Áfanginn er bóklegur og verklegur og fjallað er um starfsemi mannslíkamans með áherslu á bein og vöðva. Sérstök áhersla verður lögð á þau líffæri og líffærakerfi sem tengjast hreyfingum mannslíkamans. Fjallað er um bein, bönd og liðamót, liðfleti og liðpoka. Einnig um hreyfingu í liðamótum og stefnu hreyfinga. Fjallað er um einstaka vöðva, upptök þeirra, festu og starf. Farið verður í blóðrás og öndunarfæri. Fjallað er um hugtök og grundvallaratriði hreyfifræðinnar og komið inn á tækni íþróttagreina. Áfanginn byggir að stórum hluta á starfrænni hreyfifræði, þ.e. hvernig vöðvar, bein og liðamót líkamans koma við sögu í fjölbreyttum hreyfingum. Nemendur gera æfingar með og án áhalda til að auka skilning sinn á því hvernig ákveðnar hreyfingar myndast í íþróttum. Enn fremur er fjallað um rétta líkamsbeitingu, starfsstellingar og hreyfingar við vinnu.
ÍÞRF1ÞÞ06
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu vöðvum og vöðvahópum líkamans
hlutverki beinagrindar og hreyfingu helstu liðamóta
beinum, böndum og liðamótum líkamans
helstu lögmálum hreyfifræðinnar
hjarta og æðakerfum líkamans
upplýsinga leit á veraldarvefnum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
þekkja helstu vöðva líkamans, upptök þeirra og festu
þekkja helstu bein líkamans, heiti þeirra og staðsetningu
þekkja liðgerðir og hreyfingar þeirra
vinna með helstu hreyfifræðilögmálin
beita réttri lyftitækni
nota réttar starfsstellingar
þekkja afkasta aukandi/hamlandi þætti varðandi hjarta og æða kerfi
finna upplýsingar og lesa úr þeim af veraldarvefnum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta greint hreyfingu helstu vöðva líkamans út frá upptöku og festu
geta grein frá staðsetningu og heita helstu beina líkamans
geta notað hreyfifræðilögmál til að skýra út ýmsar hreyfingar
geta greint vöðvavinnu í ákveðnum æfingum
geta greint mun á réttri og rangri líkamsbeitinu
geta grein frá helstu þáttum varðandi hjarta og æðakerfið
nýta upplýsingatækni til að vinna úr upplýsingum með fagmennsku í fyrirrúmi