Í áfanganum er lögð áhersla á verklega og fræðilega þætti upphitunar og þols fyrir einstaklinginn. Farið er yfir mikilvægi upphitunar fyrir líkamlega þjálfun og unnið með æfingar og leiki sem henta fyrir líkams- og heilsurækt eða mismunandi íþróttagreinar. Farið er yfir það helsta sem á sér stað í líkamanum við upphitun og þá kosti sem góð upphitun hefur í för með sér. Í áfanganum er einnig fjallað um þol og þolþjálfun og hvernig byggja megi upp og viðhalda þoli. Farið er yfir muninn á loftháðri og loftfirrtri þolþjálfun auk þess sem farið verður yfir almennt og sérhæft þol tengt ýmsum íþróttagreinum. Þá verða nemendum kynntar aðferðir við mælingar á þoli. Einnig verður farið í liðleika og meiðsl við þjálfun
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
nauðsyn góðrar upphitunar
mun á almennri upphitun, sérhæfðri upphitun og óvirkri upphitun
ýmsum þjálfunaraðferðum varðandi þol t.d. loftháð þol og loffirrt þol.
hámarkspúls, þjálfunarpúls, hvíldarpúls.
meiðslum við þjálfun
nauðsyn liðleika
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nokkrum aðferðum við almenna og sérhæfða upphitun
nýta sér ýmsar leiðir til liðleikaþjálfunar
nýta sér ýmsar leiðir til þolþjálfunar
prófa ýmsar leiðir til þolþjálfunar
leggja mat á ýmsar aðferðir sem varða þol- og liðleikaþjálfun á gagnrýnin hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta búið til þolþjálfunaráætlun sem hæfir hans þjálfunarstigi
geta búið til liðleika áætlun fyrir sjálfan sig
geta séð um almenna og sérhæfða upphitun fyrir hóp