Í áfanganum er lögð áhersla næringu og lífstílsbreytingar. Nemendur fá að gera eigin þjálfunaráætlun, auk þess sem fjallað er um líkamleg og sálræn áhrif þjálfunar.
Fjallað er um gildi reglulegrar og skipulagðrar líkamsþjálfunar og nemendum gerð grein fyrir ábyrgð á eigin líkama.
ÍÞRÓ1LA01
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
æfingum og leikjum sem viðhalda og bæta tækni íþróttagreina.
alhliða líkams- og heilsurækt.
styrkjandi og mótandi æfingum fyrir helstu vöðva og liðamót líkamans
geri sér grein fyrir mikilvægi skipulagi þjálfunar.
skipulagningu eigin þjálfunar.
forsendum og áhrifum þjálfunar á leiginn líkama og heilsu.
orkuefnum kolvetni, próteini og fitu
áhrifum lífstílls á heilsu og álagssjúkdóma
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nýta sér ýmsar leiðir til að stunda styrktarþjálfun
nýta sér ýmsar leiðir til að stunda þolþjálfun
geta útbúið sérsniðna þolþjálfunar áætlun sem hentar honum sjálfum
skilja hvaða þættir í eiginn lífstíl hafa áhrif á heilsu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum sem varða þjálfun á eiginn líkama
útbúa sérsniðna styrktar áætlun sem hentar honum sjálfum
útbúa sérsniðna þolþjálfunar áætlun sem hentar honum sjálfum
geta breytt eiginn lífstíl ef þörf er á.
geta valið og hafnað ákveðnum matartegundum vegna hollustugildis.