Í áfanganum er lögð áhersla markmiðsetningu. Bæði verður unnið með skammtíma-og langtímamarkmið. Nemendur fá að gera eigin þjálfunaráætlun til lengri og skemmri tíma sem byggist á þekkingu um þol, styrk og liðleika úr fyrri áföngum. Lögð er áhersla á að nemendur fái tækifæri til að stunda fjölbreytta þjálfun. Farið verður yfir lífsstílsbreytingar
ÍÞRÓ1LN01
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
æfingum og leikjum sem viðhalda og bæta tækni íþróttagreina.
alhliða líkams- og heilsurækt.
styrkjandi og mótandi æfingum fyrir helstu vöðva og liðamót líkamans.
geri sér grein fyrir mikilvægi skipulagi þjálfunar.
skipulagningu eigin þjálfunar til lengri og skemmri tíma
forsendum og áhrifum þjálfunar á eiginn líkama og heilsu.
markmiðasetningum til lengri og skemmri tíma
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nýta sér ýmsar leiðir til að stunda styrktarþjálfun
nýta sér ýmsar leiðir til að stunda þolþjálfun
skilja hvaða þættir í eiginn lífstíl hafa áhrif á heilsu.
markmiðasetningu sem tekur til hreyfingar og mataræðis
sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum sem varða þjálfun á eiginn líkama
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum sem varða þjálfun á eiginn líkama
útbúa sérsniðna styrktar áætlun sem hentar honum sjálfum til lengri tíma
útbúa sérsniðna þolþjálfunar áætlun sem hentar honum sjálfum til lengri tíma
geta breytt eiginn lífstíl ef þörf er á
geta valið og hafnað ákveðnum matartegundum vegna hollustugildis með tilliti til markmiða sinna