Í áfanganum er lögð áhersla á verklega og fræðilega þætti styrks, snerpu, samhæfingar og líkamsbeitingar. Nemendur læra meðal annars um ýmsar þjálfunar aðferðir í styrktarþjálfun, hraðaþjálfun og um rétta líkamsbeitingu í leik og starfi. Einnig fá nemendur fjölþætta hreyfiþjálfun í gegnum ýmsar íþróttagreinar.
ÍÞRÓ1HL01
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvers vegna styrktar, snerpu þjálfun sé nauðsynleg
mikilvægi sérhæfðar upphitunar fyrir styrktar og snerpuþjálfun
ýmsum þjálfunaraðferðum varðandi styrk,snerpu og samhæfingu
á gerð styrktarþjálfunaráætlunum
mikilvægi réttrar líkamsstöðu.
gildi reglulegrar hreyfingar.
mikilvægi fjölþættarheyfifærini
mismunandi áhrifum varðandi endurtekningafjölda við styrktar- og snerpuþjálfun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
búa til styrktarþjálfun
nýta sér ýmsar leiðir til að stunda styrktarþjálfun
prófa ýmsar leiðir til styrktar-og snerpuþjálfunar.
leggja mat á ýmsar aðferðir sem varða styrktar- og snerpuþjálfun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
búa til styrktaráætlun sem hæfir hans þjálfunarstigi
búa til snerpuþálfunar áætlun fyrir sjálfan sig
beita líkamanum rétt í leik og starfi
benda öðrum á mikilvægi réttar líkamsbeitingar varðandi álags meðsli og álags sjúkdóma
gera sér gein hversu mikilvæg hreyfing er sem forvörn bæði fyrir andleg og líkamlega líðan
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metinn jafn óðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum