Í áfanganum læra nemendur undirstöðuatriði í knattspyrnu. Lögð er áhersla á knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur sundur í stuttar einingar, leikæfingar. Nemendur þjálfist í kennslu knattspyrnu. Áfanginn er bóklegur og verklegur.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að leiðbeina börnum á mismundandi aldri í knattspyrnu með grunnatriði sem markmið
leikfræði
skipulagi á þjálfun fyrir börn og unglinga
leikreglum
helstu þjálfunaraðferðir
mikilvægi á fjölbreyttum tækni- og leikæfingum í knattspyrnu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Búa til tímaseðla fyrir mismunandi aldur knattspyrnu iðkanda
beita flautu og dæma knattspyrnu
beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta leiðbeint ýmsum aldurshópum í knattspyrnu
geta búið til tímaseðla, vikuáætlun og mánaðaráætlun með ákveðinn aldur í huga
geta beitt fjölbreyttum aðferðum við knattspyrnuþjálfun í samráði við kennara