Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1643366599.3

    Bókmenntir, mál- og menningarsaga
    ÍSLE2BG05
    71
    íslenska
    bókmenntir, goðafræði, málsaga
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum áfanga kynnast nemendur norrænni goðafræði og hugmyndaheimi norrænna manna til forna. Þá er einnig fjallað um sögu tungumálsins, uppruna þess og þróun ásamt umfjöllun um nútímabókmenntir. Nemendur fá þjálfun í munnlegri tjáningu og ritun með skapandi og fjölbreyttum verkefnum. Áhersla er lögð á að nemendur þjálfist í ritgerðasmíð og notkun heimilda um sérhæfð efni. Lesin verður kjörbók að eigin vali.
    Að nemandi hafi lokið áfanganum ÍSLE2RB05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • sögu íslenskrar tungu frá upphafi til okkar daga, einkennum hennar og tengslum við önnur tungumál
    • fornum hugmyndaheimi norrænna manna, norrænum goðum og sögum af þeim
    • meginatriðum íslenskrar málstefnu, orðasmíð og merkingu orða og orðasambanda
    • helstu greinum nútímabókmennta og hugtökum þeim tengdum
    • mikilvægi vandaðra vinnubragða við úrvinnslu heimilda
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa ólík bókmenntaverk frá ýmsum tímum og fjalla um inntak þeirra
    • nota bókmenntafræðileg hugtök við greiningu og túlkun
    • nota fræðibækur og -greinar við gerð heimildaritgerða og verkefna
    • vitna í heimildir, vísa til þeirra og skrá á viðeigandi hátt
    • tjá skoðanir sínar á námsefninu með skipulögðum og rökstuddum hætti, bæði í ræðu og riti
    • vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið
    • setja verkefni upp á ólíkan máta, m.a. miðla þeim með stafrænum hætti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina og túlka bókmenntatexta með hugtökum bókmenntafræði
    • færa rök fyrir skoðunum sínum jafnt munnlega sem skriflega
    • skrifa vandaðan texta á góðu og blæbrigðaríku máli
    • leggja mat á gildi heimilda og vinna úr þeim með skipulögðum hætti
    • vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra
    • miðla þekkingu sinni og hugmyndum með stafrænum hætti
    Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar eru fjölbreytt og skapandi verkefni úr ólíkum efnisþáttum, bæði munnleg og skrifleg.