Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1643619534.82

    Eðlisfræði - aflfræði
    EÐLI2AF05
    30
    eðlisfræði
    aflfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Þessi áfangi er byrjunaráfangi í eðlisfræði. Nemendur kynnast hreyfi- og kraftafræði Newtons, út frá línulegri hreyfingu, ásamt vinnu- og orkulögmálinu í tengslum við varmafræði. Nemendur eiga að geta beitt SI einingakerfinu og kunni skil á helstu lögmálum og jöfnum sem tengjast námsefninu.
    Að nemandi hafi lokið áfanganum STÆR3CC06 (Hornaföll og Vigrar) eða taki hann samhliða.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grundvallarhugtökum í hreyfi- og kraftafræði Newtons
    • hreyfingu hlutar með jafnri hröðun eftir beinni braut
    • skilgreiningu á massa og þyngd
    • lögmálinu um varðveislu orkunnar og hreyfilögmál Newtons
    • varðveislu skriðþunga í einföldum árekstri
    • SI einingakerfinu við lausn verkefna
    • notkun stafrænna miðla við lausn og framsetningu verkefna.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • fara með tölur, vigra og ýmis stærðfræðileg hugtök við lausn eðlisfræðilegra verkefna
    • beita lögmálum og jöfnum við að leysa verkefni af ýmsu tagi
    • umrita jöfnur og finna óþekktar stærðir í ýmsum dæmum
    • framkvæma verklegar æfingar og setja fram niðurstöður á réttan hátt
    • gera skýrslur úr verklegum æfingum og geti metið hvort niðurstöður mælinga séu raunhæfar
    • nýta stafræna miðla við úrlausn verkefna.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og sinni náminu af ábyrgð
    • nota námsefni og gögn á markvissan hátt
    • yfirfæra þekkingu úr öðrum raungreinum til að auðvelda lausn og skilning á verkefnum
    • tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar
    • miðla hugmyndum og lausnum með stafrænum hætti.
    Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.