Í áfanganum læra nemendur að útbúa holla og einfalda létta rétti með áherslu á hádegisverð, millimál og nesti. Farið er yfir það hvaða áhöld og tæki eru nauðsynleg við matseld sem og öryggisþætti í eldhúsi. Nemendur læra borðsiði og hollar neysluvenjur.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að fara eftir einföldum sjónrænum uppskriftum og nýta viðeigandi áhöld
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka þátt í eldamennsku
sækja rétt hráefni og áhöld
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
elda einfalda rétti
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá