Markmið áfangans er að nemendur auki grunnþekkingu sína í dönsku. Áhersla er á hlustun, talæfingar, lestur og ritun stuttra texta.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig tungumálið nýtist honum.
grunnorðaforða talaðs og ritaðs máls
málfræði tungumálsins.
inntaki ýmiss konar texta, t.d. blaðagreina, smásagna og kvikmynda.
notkun stafrænna miðla
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
stuðla að eigin framförum í tungumálinu.
nota hraðlestur og ítarlestur og lesa sér til ánægju og fróðleiks.
semja stutta texta um ýmis málefni.
nota tölvur til að afla sér fróðleiks (og miðla) um afmarkað efni, orð eða málfræðilega þætti.
taka þátt í einföldum samtölum.
skilja skýrt og einfalt talmál
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera sér grein fyrir hvað dönskukunnátta hefur að segja fyrir hann.
ná aðalatriðum úr fjöl- og myndmiðlum og fylgjast með einföldum frásögnum og erindum sér til gagns.
halda uppi kurteisissamtölum og ráða við samtöl við algengar aðstæður, t.d. á brautarstöð, við pylsuvagn eða á veitingahúsi.
afla sér upplýsinga og skrifa um áhugamál sín
nota hjálpartæki á netinu netinu, málfræðivefi, orðabækur og þýðingavélar
geti lesið og endursagt efni stuttra greina, t.d. blaðagreina
miðla þekkingu sinni og hugmyndum með stafrænum hætti
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metinn jafn óðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.]