Í áfanganum læra nemendur að leiðbeina börnum undirstöðuatriði í badminton í samvinnu við kennara. Lögð er áhersla á kennslu grunnfærni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur sundur í stuttar einingar, leikæfingar. Farið verður í grunnáherslur í verklegri styrktarþjálfun. Framkvæmd æfinga og mismunandi áherslur í sambandi við mismunandi markmið. Áfanginn er bóklegur og verklegur.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að leiðbeina börnum á mismundandi aldri í bandminton
leikreglum
kennslu í bandminton
mikilvægi á fjölbreyttum tækni- og leikæfingum í badminton
mikilvægi styrktarþjálfunar
mismunandi leiðum til styrktarþjálfunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
búa til tímaseðla fyrir mismunandi aldur bandminton iðkanda
íþróttinni bandminton og miðla því frá sér
beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni bæði í bandminton og styrktarþjálfun (tækjasal)
þjálfa í þreksal
sýna og framkvæma ýmsar styrktarþjálfunar æfingar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta leiðbeint ýmsum aldurshópum í badminton í samvinnu við kennara
geta búið til tímaseðla, vikuáætlun og mánaðaráætlun með ákveðinn aldur í huga
geta beitt fjölbreyttum aðferðum við bandmintonþjálfun
geta framkvæmt algengustu lyftingaæfingar rétt
geta leiðbeint fólki í þreksal með fjölbreytt æfinga val og rétta tækni í samvinnu við kennara