Áfanginn er ætlaður þeim nemendum sem ekki hafa náð góðum tökum á námsefni íslensku í lokaáföngum grunnskóla. Stefnt er að því að efla sjálfstraust nemenda og trú á eigin málfærni í ræðu og riti. Áhersla er lögð á að nemendur bæti lestrartækni, lestarhraða og lesskilning sinn. Ennfremur fá þeir þjálfun í málfræðihugtökum sem nýtast í tal- og ritmáli og grunnhugtökum í ritgerðasmíð. Nemendur auka orðaforða sinn í ræðu og riti.
Engar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnhugtökum í ritgerðasmíð.
helstu málfræðihugtökum og ritreglum sem nýtast í tal - og ritmáli.
orðaforða umfram það sem gerist í talmáli
gildi góðrar lestarkunnáttu í lífi og starfi.
nokkrum tegundum bókmennta- og nytjatexta, t.d. skáldsögum, smásögum og blaðagreinum
helstu bókmenntahugtökum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
þekkja mismunandi blæbrigði og málsnið í tal- og ritmáli
draga saman aðalatriði í fyrirlestrum og lesmáli
taka saman og flytja stuttar endursagnir, lýsingar og kynningar á afmörkuðu efni
skrifa ýmsar tegundir texta þar sem framsetning er skýr og skipulögð
leita upplýsinga úr heimildum og nýta þær á viðurkenndan hátt sér til gagns
lesa sér til gagns og gamans texta sem gera nokkrar kröfur til lesenda
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
semja stutta texta af ýmsu tagi með mismunandi málsniði
beita einföldum blæbrigðum í málnotkun til að forðast einhæfni og endurtekningar
skrifa ritgerð um efni að eigin vali
túlka og meta atburðarrás og persónur í bókmenntum eða annars konar frásögnum
greina helstu bókmenntahugtök í ýmsum tegundum texta
miðla þekkingu sinn og hugmyndum með stafrænum hætti
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.