Áfanginn samanstendur eingöngu af verklegri kennslu m.a. gönguskíðum, svigskíðum, snjóbrettum og annarri útiveru. Í áfanganum er lögð áhersla á fjölbreytta hreyfingu og fræðslu um þætti sem fólk þarf að hafa í huga þegar það stundar vetraríþróttir.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi hreyfingar fyrir heilsuna
fjölbreyttum möguleikum til útiveru yfir vetrartímann
búnaði sem þarf að hafa til að stunda ýmisskonar vetraríþróttir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
iðka fjölbreyttar vetraríþróttir
klæða sig eftir veðri
þekkja takmörk sín í mismunandi veðri
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
stunda óhefðbundnar íþróttir
geta nýtt sér vetraraðstæður til líkamsræktar og heilbrigðra lífshátta s.s. göngu- og svigskíðaferðir