Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1644499585.54

    Skapandi geinar 2
    STÍM2AA05
    1
    STEAM - skapandi geinar
    Samþætting tækni, stærðfræði, verkfræði og listir, vísinda
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum áfanga er áhersla lögð á að samþætta tækni, vísindi, stærðfræði, verkfræði og listir út frá áhugasviði nemenda. Nemendur vinna með hugmynd sem þeir kynntu í STÍM I eða aðra hugmynd sem þeir setja fram í upphafi áfangans. Nemendur fá þjálfun í að setja fram hugmyndir sínar á einfaldan hátt. Þeir fá þjálfun í að nýta sér hugbúnað, tækni og tæki eftir því sem við á í hönnunarvinnu. Lögð er áhersla á að nemendur fái tækifæri til að tengjast atvinnulífi, samfélagi og umhverfi við úrvinnslu verkefna og geti nýtt sér fjölbreytt verkfæri við hugmyndavinnu og sköpun.
    STÍM1AA05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • því hvernig vísindi og tækni geta samþætt raun og listgreinar
    • hugmyndahugsun og skapandi ferli
    • mikilvægi samvinnu og verkefnastjórnunar í flóknum verkefnum
    • mikilvægi góðra samskipta við samstarfsaðila
    • á hugbúnaði, tækjum og aðferðum sem nýtast til sköpunar og miðlunar
    • heimildaöflun í undirbúningi skapandi verkefna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota fjölbreyttar aðferðir og tækni við miðlun þekkingar sinnar og hugmynda
    • vinna sjálfstætt og með öðrum að samþættum verkefnum
    • rýna eigin hugmyndir og annarra til gagns
    • sýna seiglu og skipuleggja eigin verkefnavinnu
    • leysa úr ágreiningi og finna leiðir til úrlausna þegar þess gerist þörf
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna að þverfaglegu verkefni þar sem hann nýtir þær aðferðir og verkfæri sem liggja til grundvallar í áfanganum
    • afla upplýsinga og heimilda sem nýtast inn í verkefnið
    • móta hugmynd út frá eigin áhugasviði og búa til afurð
    • virða höfundarrétt og nota heimildir og tilvísanir eftir viðurkenndum leiðum
    Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafn óðum allan námstímann. Til grundvallar matinu eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.