Í áfanganum er fjallað um þroskaferil mannsins og sérstaklega tekinn fyrir vitsmunaþroski, siðferðisþroski, félags- og tilfinningaþroski. Mótunaráhrif umhverfis svo sem fjölskyldu, vina og fjölmiðla eru skoðuð. Nemendur fá æfingu í að ræða um og velta fyrir sér álitamálum sem tengja má við efni áfangans. Nemendur fá tölvuert val til að dýpka þekkingu sína eftir áhugasviði innan efni áfangans.
SÁLF2IS05 Inngangur að sálfræði
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
viðfangsefnum og helstu álitamálum þroskasálfræðinnar
helstu kenningarsmiðum á sviði þroskasálfræðinnar
helstu hugtökum innan þroskasálfræðinnar
þroskaferli mannsins.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta hugmyndir og viðfangsefni þroskasálfræðinnar
tjá sig um sálfræðilegt efni í ræðu og riti
afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
nýta fræðilegan texta um efnið á íslensku og erlendu tungumáli
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vera meðvitaður um mótunaráhrif uppeldis
geta tekið ákvarðanir á upplýstan og meðvitaðan hátt í samskiptum við aðra
skilja breytingar á vitsmunaþroska manna
skilja þroska félags- og tilfinninga eftir mismunandi æviskeiðum mannsins
tjá sig í ræðu og riti við mismunandi aðstæður
meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
Leiðsagnarnám. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.