Lög er áhersla á að nemendur þekki helstu reglur um tvíhliða bókhald og skilji grundvallarhugtökin eignir, skuldir, gjöld og tekjur. Nemendur eiga að öðlast leikni í almennum færslum dagbókar og uppgjör reikninga í rekstrar- og efnahagsreikningi. Eftir áfangan eiga nemendur að vera búnir að fá almenna þekkingu og grunvallarhæfni í að færa og gera upp einfalt bókhald.
Upplýsingatækni
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grundvallarhugtökum tvíhliða bókhalds
bókhaldshringrásinni
flestum reikningum sem teljast til grunnreikninga í fjárhagsbókhaldi
uppgjöri í efnahags- og rekstarreikngs
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
færa einfaldar dagbókafærslur með tilgreindum reikningum
nota upplýsingar hverning lagfæra á bókhaldið með hliðsjón af einföldum athugasemdum
nota upplýsingar til að geta sett upp rekstrar- og efnahagsreikning í lok reikningstímabils
• reikna vexti, vsk, álagningu oþh
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útskýra grunnreikninga í fjárhagsbókhaldi
skýra með dæmum einfaldar dagbókafærlsur með fyrirliggjandi upplýsingum
útskýra tilgang uppgjörs á rekstrar- og efnahagsreikningi
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstímann.