Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1645528894.78

    Bókfærsla - grunnáfangi
    BÓKF1BF05
    11
    bókfærsla
    bókfærsla, dagbók, fyrsti áfangi, grunnatriði bókfærslu, inngangur að bókfærslu, uppgjör
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um bókhaldshringrásina og helstu reglur tvíhliða bókhalds. Fjallað er um grundvallarhugtökin eignir, skuldir, gjöld og tekjur. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að annast almennar færslur í dagbók, hafi skilning á uppgjöri og geti sett fram efnahags- og rekstrarreikning. Nemendum er veitt innsýn í notkun flestra reikninga sem telja má til grunn reikninga í fjárhagsbókhaldi. Nemendum er gerð grein fyrir tilgangi bókhalds og kynnt helstu lög um bókhald og virðisaukaskatt.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Grundvallarhugtökum tvíhliða bókhalds
    • Hinum fjórum grundvallarlyklum bókhalds, eignir, skuldir, gjöld og tekjur
    • Muninum á efnahags- og rekstrarreikningi
    • Hugtökunum álagning, vextir, afskriftir, söluhagnaður og tap eigna
    • Flutningsskilmálunum FOB og CIF
    • Undirstöðuatriðum launabókhalds
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Hefja bókhald með hliðsjón af fyrirliggjandi efnahagsreikningi eða stofnun fyrirtækis
    • Stilla upp prófjöfnuði
    • Gera einfaldar dagbókarfærslur
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Geta gert upp viðskipti fyrir ákveðið tímabil
    • Geta gert lagfæringar á bókhaldinu með hliðsjón af einföldum athugasemdum svo sem varðandi afskriftir, birgðatalningu, fyrirfram og ógreiddan kostnað og fleira
    • Geta gert upp virðisaukaskatt
    • Geta sett upp rekstrar- og efnahagsreikning í lok reikningstímabils
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati yfir áfangann. Öll vinna, þátttaka og verkefni í áfanganum gilda til einkunnar.