Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1645700172.03

    Íþróttir- skipulögð hreyfing framhald
    ÍÞRÓ1SÍ01
    74
    íþróttir
    skipulögð hreyfing framhald, íþróttir
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Áfanginn er verklegur. Nemendur fá alhliða hreyfireynslu með fjölbreytni að leiðarljósi á eigin forsendum. Eigin heilsurækt verður að fara fram með skipulegu hætti og undir leiðsögn þjálfara/leiðbeinanda. Einnig er hægt að nota aðstöðu í Íþróttamiðstöðinni. Nemendur eru hvattir til að rækta líkama sinn sér til heilsubótar bæði varðandi hreifingu og næringu. Nemandi sem veldur eiginn heilsurækt ber ábyrgð á því að kennari viti um mætingar hans.
    ÍÞRÓ1SK01
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • alhliða líkams- og heilsurækt.
    • styrkjandi og mótandi æfingum fyrir helstu vöðva og liðamót líkamans.
    • skipulagningu eigin þjálfunar.
    • forsendum og áhrifum þjálfunar á eiginn líkama og heilsu.
    • orkuefnum kolvetni, próteini og fitu
    • áhrifum lífstílls á heilsu og álagssjúkdóma
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nýta sér ýmsar leiðir til að stunda styrktarþjálfun
    • nýta sér ýmsar leiðir til að stunda þolþjálfun
    • nýta sér fjölbreyttar leiðir til heilsuræktar
    • lesa utan á matar umbúðir varðandi innihald orkuefna
    • skilja hvaða þættir í eiginn lífstíl hafa áhrif á heilsu.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum sem varða þjálfun á eiginn líkama
    • útbúa sérsniðna styrktar áætlun sem hentar honum sjálfum
    • breyta eiginn lífstíl ef þörf er á
    • velja og hafna ákveðnum matartegundum vegna hollustugildis
    • finna eigin leið til heilsuræktar
    • útbúa sérsniðna þolþjálfunar áætlun sem hentar honum sjálfum
    Leiðsagnarmat