Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1646299692.3

    Kynjafræði
    FÉLA3KY05
    38
    félagsfræði
    kynjafræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum dýpka nemendur þekkingu sína á fræðum kynjafræðinnar. Farið er í kenningar kynjafræðinnar og hvaða áhrif þær hafa á sýn samfélagsins. Hvaða áhrif kynjafræðin sem fræðigrein hefur á sýn og nálgun samfélagsins. Nemendur beina sjónum sínum að eigin samfélagi, málefnum líðandi stundar og skoða tímarit, kvikmyndir, stjórnmál og fjölmiðla út frá hugmyndum kynjafræðinnar. Sérstök áhersla er lögð á eigin ígrundun, að rökstyðja skoðanir sínar, virðingu, þátttöku í umræðum og samvinnu.
    FÉLA2KY05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hugtökum kynjafræðinnar
    • hugtökum jafnréttismála
    • tengingu kynjafræðinnar við nær- og fjærumhverfi
    • tengingu kynjafræðinnar við sjálfan sig og tilveruna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • taka þátt í umræðum með virðingu fyrir skoðunum annarra
    • geta rökstutt málefni tengd kynjafræðinni og fjallað um álitamál út frá hugmyndum hennar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skoða umhverfi sitt með kynjagleraugunum
    • sett sig í spor annarra og sýnt fjölbreytileika mannlífsins virðingu
    • meta mikilvægi virkrar borgaralegrar þátttöku
    Í áfanganum er leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.