Fjallað er um uppbyggingu og virkni á ýmsum rafeindastjórnkerfum, virkni mismunandi skynjara, hreyfiliða og annarra íhluta. Skoðuð eru margskonar merki frá skynjurum og stjórnmerki hreyfiliða. Hannaður og smíðaður er einfaldur stjórnbúnaður sem nýtir mismunandi hálfleiðara.
Farið er í virkni netkerfa og samskipti stjórntölva. Unnin eru verkefni í bilanagreiningu, notkun mælitækja og mati á niðurstöðum mælinga.
Áhersla er lögð á notkun mælitækja og tækniupplýsinga, og mat á niðurstöðum mælinga.
Rafmagnsfræði og mælingar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Virkni helstu íhluta í rafeindabúnaði.
Merki helstu skynjara í rafeindabúnaði.
Merki helstu hreyfiliða í rafeindabúnaði.
Virkni og hlutverk helstu netkerfa í bílum.
Helstu aðferðum og mælitækjum við bilanagreiningu í rafeindabúnaði.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Útskýra virkni margs konar rafeindabúnaðar í bílum.
Útskýra virkni og notkun netkerfa í bílum.
Hanna og smíða einfaldan rafeindastjórnbúnað.
Framkvæma mælingar og bilanagreiningar í margs konar rafeindabúnaði.
Nota viðeigandi mælitæki og tækniupplýsingar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Útskýra virkni margs konar rafeindastjórnbúnaðar í bílum.
Útskýra virkni og notkun netkerfa í bílum.
Framkvæma mælingar og mat á niðurstöðum mælinga á rafeindabúnaði.
Framkvæma öruggar og hagkvæmar viðgerðir á rafeindabúnaði.
Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.