Í áfanganum læra nemendur að nýta sér tölvur eða forrit sem í boði eru við útreikninga og verkáætlanir. Kennd eru grunnatriði töflureiknis og verkáætlanaforrits. Farið í stjórnunar‐ og verkferla og gæðamál. Fjallað er um áætlanagerð og sundurliðun verkefna. Áfanginn er sniðinn að þörfum frumkvöðla og fer kennslan að mestu fram með raunhæfum verkefnum. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð og ábyrgð í eigin námi.
UPPT1UT05 og HCCP2UV04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
verkefnastýringu/gæðastjórnun
gerð kostnaðaráætlana
uppbyggingu töflureikna og hagnýtingu þeirra
áætlanagerð og verkáætlanaforritum
tölvuforritum sem notuð eru til að gera verkáætlanir og hagnýtingu þeirra
helstu stjórnunar‐ og verkferlum
innra eftirliti með einstökum verkþáttum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
hráefnis- og kostnaðarreikna einfalda þætti verklegra framkvæmda
gerð verk og tímaáætlanir
fylgja eftir gæðastjórnun á verkferlum
nota verkáætlanaforrit við gerð tímaáætlana
leita að fjármögnunarkostum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hráefnis- og kostnaðarreikna einfalda verkþætti á sjálfstæðan hátt
beita tíma‐ og hráefnisskráningu
vinna með tölvuforrit sem notuð eru til að gera verkáætlanir
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.