Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1653324853.73

    Málmsuða 2
    MÁBS2BS03
    1
    Málmsuða bifreiðasmíði
    Bifreiðasmiðir
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Rifjaðar eru upp mismunandi suðuaðferðir í yfirbyggingu bifreiða svo sem stálsuða, koparsuða, álsuða og punktsuða. Unnin eru krefjandi verkefni í mismunandi suðuaðferðum á efnisþykkt 0,8 til 1,5 mm. Áhersla er lögð á öryggisatriði og notkun á réttum hlífðarbúnaði. Áhersla er á verkefnavinnu og þjálfun nemanda.
    Málmsuða 1
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Mismunandi suðuaðferðum í yfirbyggingum bifreiða.
    • Virkni mismunandi suðutækja og verkfæra.
    • Mikilvægi notkunar öryggis- og hlífðarbúnaðar.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Velja rétta suðuaðferð miðað við efnið sem sjóða á.
    • Nota mismunandi suðuaðferðir og suðutæki.
    • Nota og meðhöndla viðeigandi verkfæri.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Sjóða mismunandi efni í yfirbyggingum bifreiða.
    • Velja réttar suðuaðferðir og -tæki.
    • Framkvæma vinnu á öruggan hátt.
    • Vinna sjálfstætt.
    Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.