Í áfanganum er fjallað um andlegt, líkamlegt og félagslegt heilbrigði. Áhersla verður lögð á leiðir sem einstaklingar geta nýtt sér til að bæta eigin heilsu, s.s. streitustjórnun og almennt gildi heilbrigðs lífstíls gagnvart líðan einstaklinga.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi svefns, hvíldar og slökunar.
mikilvægi þess að borða hollan og fjölbreyttan mat.
gildi heilbrigðs lífsstíls.
aðferðum sem draga úr eða koma í veg fyrir ofstreitu t.d. núvitundaræfingum, sálfræðilegum aðferðum og heilbrigðum lífsstíl.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita mismunandi slökunaraðferðum og streitustjórnun.
skoða sitt eigið mataræði og velja sem oftast holla næringu.
skoða og meta eigið heilbrigði og velferð og taka ábyrgð á eigin hegðun.
rýna í eigin sjálfsmynd og skoða eigin stöðu.
finna út hvort hann þarf að breyta einhverju í sínum lífstíl til að líða betur.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
stuðla að eigin andlegu, líkamlegu og félagslegu heilbrigði.
takast á við álag og neikvæðar tilfinningar sem geta komið upp í daglegu lífi.
Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.