Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1656668164.57

    Krossgötur - stúdentspróf og hvað svo?
    KROS3ÚS01
    1
    Krossgötur
    Útskrift og samfélagsleg ábyrgð
    Samþykkt af skóla
    3
    1
    Í áfanganum er unnið að því að nemendur verði vel í stakk búnir til að marka sér framtíð og bera ábyrgð á þeirri leið sem þeir kjósa eftir að stúdentsprófi lýkur. Kenndar eru leiðir til að efla sjálfsþekkingu og að taka ákvarðanir á yfirvegaðan hátt. Áhersla er lögð á að nemendur séu meðvitaðir um þá óþrjótandi möguleika sem í boði eru í framhaldsnámi hérlendis og erlendis og þekki leiðir til að afla upplýsinga á þessu sviði.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • kenningu John Hollands um áhugasvið.
    • leiðum til að efla styrkleika og vinna með veikar hliðar.
    • gerð náms- og starfsferilsskráa.
    • framboði á framhaldsnámi hérlendis og erlendis og leiðum til að afla upplýsinga um nám og störf.
    • mikilvægi þess að vera virkur og taka afstöðu.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • finna upplýsingar um nám og störf og átta sig á kröfum sem gerðar eru til einstaklinga í mismunandi námi og störfum.
    • skoða ólík störf og starfsumhverfið sem þeim tengist.
    • efla sjálfskilning sinn með því að skoða innri þætti svo sem áhugasvið og styrkleika.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • þróa náms- og starfsferil sinn á uppbyggilegan hátt.
    • nýta styrkleika sína sem best.
    • uppfæra reglulega eigin náms- og starfsferilskrá.
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.