Í áfanganum læra nemendur sálfræðilegar aðferðir til að hafa áhrif á eigin líðan og andlegan styrk. Fjallað verður um hvernig líðan tengist hugsunum og hvernig hafa má áhrif á hugsanir sínar og þá um leið líðan. Auk þess læra nemendur leiðir til sjálfsstyrkingar, að efla einbeitingu, takast á við streitu, vinna gegn kvíða og höndla depurð. Einnig verður komið inn á samskipti og samskiptahæfni.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
því hvernig hugsanir hafa áhrif á líðan og hegðun
nokkrum aðferðum sálfræðinnar til að efla sjálfsmynd og bæta einbeitingu
mismunandi leiðum til samskipta s.s. til að leysa ágreining; gagnrýna á uppbyggilegan hátt og taka við gagnrýni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina mismunandi hugsanir og tilfinningar
bera saman mismunandi leiðir til að hafa áhrif á eigin líðan
meta áhrif samskipta á aðstæður og líðan
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hafa áhrif á eigin líðan með sálfræðilegum aðferðum
leggja einfalt mat á eigin líðan út frá sálfræðilegum leiðum
beita einföldum leiðum til að bæta eigin sjálfsmynd, einbeitingu og almenna líðan
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.