MEMA – Menntamaskína er nýsköpunaráfangi/hraðall þar sem nemendur vinna að nýsköpunarverkefni í tengslum við 3ja markmið Sameinuðu þjóðanna: Ekkert hungur. Áfanginn byggir á verkefnalotum sem líkja eftir hönnunar- og nýsköpunaraðferðum alþjóðlegra tæknifyrirtækja sem leggja mikla áherslu á hönnun og fljótvirka frumgerðarsmíði. Unnið er að lokaverkefni sem spannar alla önnina og fer vinnan fram í gegnum hönnunar- og tæknispretti sem byggja á teymum sem vinna að því að búa til virka frumgerð að nýsköpunarhugmynd. Maskína hefst í ágúst og lýkur með verðlaunaafhendingu í nóvember. Í Maskínu er lögð áhersla á vísindi, hagnýtingu þekkingar, samvinnu, hönnun, tilraunir og prófanir. Fab Lab Reykjavíkur leiðir verkefnið og hefur það vaxið í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti með stuðningi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Reykjavíkurborgar. Með þátttöku í MEMA gefst nemendum og kennurum tækifæri til að kynnast rannsóknum og þróun nýsköpunarhugmynda með hjálp sérfræðinga Fab Lab Reykjavíkur.
Nemendur þurfa að hafa lokið 120 einingum í framhaldsskóla.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
nýsköpun; uppbyggingu, aðferðum, hugtökum
teymisvinnu í rannsóknum og þróun
aðferðum Hönnunarspretta (Design sprint)
stafrænni hönnun og frumgerðarsmíð
notendaprófunum á lausnum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skipuleggja verkferlið með ábyrgum hætti í samvinnu við sitt teymi
sýna frumkvæði og vera skapandi í mótun hugmynda sinna
tjá sig á skýran, ábyrgan, gagnrýninn og skapandi hátt um eigin hugmyndir, verkferli og niðurstöður
vinna með sameiginlegt markmið hópsins að leiðarljósi
geta valið viðeigandi leið með tilliti til verkefna og aðstæðna hverju sinni
velja réttar aðferðir til að útfæra hugmyndir sínar hvað varðar tækni, verklag og skapandi aðferðir sem endurspegla hugmyndavinnu tengda nýsköpun og inntaki verkefna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta miðlað þekkingu sinni á fjölbreyttan hátt svo sem munnlega, skriflega, verklega og með nýmiðlum
þróa hugmyndir í teymi og sýna áræðni við útfærslu þeirra og túlkun
vinna verk af innsæi og næmni en með rannsakandi aðferðum
gera sér grein fyrir siðferðilegu og samfélagslegu hlutverki nýsköpunar
getað fjallað um nýsköpun út frá þróunarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna
vera fær um að greina og meta eigin verk og annarra af þekkingu og víðsýni
Leiðsagnarnám. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.