Í áfanganum er farið yfir grunnatriði sem tengjast náttúrulæsi í íslenskri náttúru; lifandi fræðsla um náttúruna og áskoranir sem styrkja einstaklinga og hópa. Unnið er að aukinni þekkingu og tengingu við nánasta umhverfi og átthaga.
Áfanginn er heilsueflandi og markið hans að ýta undir áhuga á útivist sem aftur gæti þróað meiri virkni og samveru fjölskyldna í framhaldinu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
náttúru, náttúruvernd, sögu og menningarminjum
þeirri virðingu sem nauðsynleg er í umgengni við náttúruna til framtíðar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nýta sér skapandi hugsun og eigin færni í umgengni við náttúruna
beita fjölbreyttri gagnaöflun um umhverfi sitt og náttúru
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sinna áhuga sínum á náttúrunni
þekkja styrkleika sína og veikleika í umgengni við náttúruna
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati, nemendur þurfa að standast mætingarkröfur áfangans.