Áfanginn byggist upp á alhliða hreyfingu og heilsurækt með áherslu á almenna grunnþjálfun. Nemendur taka þátt í verklegum æfingum sem þjálfa alla þætti grunnþjálfunar og læra aðferðir til að meta eigið líkamsþrek. Í bóklegum og verklegum hluta áfangans er lögð áhersla á þýðingu og áhrif þjálfunar á líkamann og aðferðir til að efla heilsulæsi. Námið er í formi staðkennslu og vendikennslu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppbyggingu og mikilvægi grunnþátta í almennri líkams- og heilsurækt
helstu hugtök og eðli upphitunar, styrktar- og þolþjálfunar
fjölbreyttni allra þátta til eflingar líkama og heilsu
forsendum og áhrifum þjálfunar á líkama og heilsu
neikvæðum áhrifum ávana- og vímuefna á líkamann
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tileinka sér fjölbreytta grunnþjálfun allra þátta
taka þátt í markvissri þjálfun á eigin líkamsþreki og almennri líkams- og heilsurækt
taka þátt í leikjum og æfingum sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar
mæla þol, styrk og liðleika
taka þátt í hreyfingu og æfingum sem stuðla að bættri líkamsbeitingu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja og leysa af hendi verkefni sem snúa að heilsueflingu
stunda æfingar og leiki sem viðhalda og bæta líkamlega-, andlega- og félagslega heilsu og vellíðan