Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1667990183.26

    Fagenska í raunvísindum og tækni
    ENSK3NÁ05(ms)
    48
    enska
    Fagenska í raunvísindum og tækni
    for inspection
    3
    5
    ms
    Kynnt og unnið með sérhæfðan orðaforða í raunvísindum og tækni á ensku. Notaðar greinar af ýmsum sviðum raunvísinda og tækni. Einnig eru bókmenntir lesnar og vandlega skoðaðar út frá menningarlegu og/eða vísindalegu samhengi.
    ENSK3AE05 (MS)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi fagtextum í raunvísindum og tækni
    • álitaefnum í raunvísindum og tækniþróun
    • tengslum rannsókna í raunvísindum og tækniþróun í mótun samfélaga
    • enskum orðasamböndum innan vísinda og tækni
    • framsetningu ritaðs og talaðs máls, aðallega formlegs máls
    • framsetningu hugmynda í skáldskap er tengjast raunvísindum og/eða menningu
    • fagorðabókum og íðorðasöfnum
    • heimildaskráningu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja vel texta í raunvísindum og tækni
    • skilja vel talaða ensku um raunvísindi og tækni
    • skilja tengsl raunvísinda og tækni, og samfélags
    • taka virkan þátt í samræðum um ýmis álitaefni raunvísinda og tækni
    • skrifa ýmiss konar formlega texta samkvæmt enskum reglum og hefðum
    • greina viðhorf og tengsl raunvísinda og skáldskapar
    • lesa bókmenntalegan texta út frá raunvísindum og/eða menningu
    • nota reglur um heimildaskráningu
    • nota fagorðabækur og íðorðasöfn við nám sitt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um málefni raunvísinda og tækni
    • skilja inntak rökræðna og erinda um raunvísindi og tækni
    • átta sig á mismunandi notkun tungumálsins í töluðu máli og undirliggjandi viðhorfum og tilgangi þess sem talar
    • greina tengsl vísindaskáldskapar og raunverulegra kenninga
    • gagnrýna á rökfastan hátt texta um raunvísindi og tækni á hlutlægan hátt
    • tjá sig á skipulegan hátt um efni tengt raunvísindum og tækni
    • nýta sér heimildir samkvæmt reglum um notkun heimilda
    • nýta sér fagorðabækur og íðorðasöfn við nám sitt á réttan hátt
    • skrifa formlega ritgerð með inngangi með efnisyrðingu, meginmáli og lokaorðum
    Gerð er grein fyrir námsmati og sundurliðun þess í námsáætlun.