Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1667990553.71

    Fagenska í tækni og vísindum
    ENSK3TV05(ms)
    49
    enska
    Fagenska í tækni og vísindum
    for inspection
    3
    5
    ms
    Unnið verður með sérhæfðan, enskan orðaforða í tækni og vísindum. Fagefni sem fjallar um tækni og vísindi verður notað. Fagefnið verður blanda af raunverulegum málefnum tengdum tækni og vísindum og vísindaskáldskap. Vísað verður í bókmenntir út frá tækni og vísinda.
    10 framhaldsskólaeiningar í ensku á þriðja þrepi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi efni fyrirlestra og fræðsluefnis um tækni og vísindi
    • tengslum rannsókna í tækniþróun og vísindum
    • framsetningu ritaðs og talaðs máls, aðallega formlegs máls
    • fagorðabókum og íðorðasöfnum
    • heimildaskráningu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja vel ritaða texta í tækni og vísindum
    • skilja vel talaða ensku um tækni og vísindi
    • taka virkan þátt í gagnrýnum samræðum um málefni tækni og vísinda
    • tengja saman menningu við tækni og vísindi
    • nota reglur um heimildaskráningu
    • nota fagorðabækur og íðorðasöfn við nám sitt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um málefni tækni og vísinda
    • skilja inntak rökræðna og erinda um tækni og vísindi
    • taka þátt í gagnrýnum rökræðum og umræðum um tækni og vísindi
    • tjá sig á skipulagðan og gagnrýninn hátt um efni tengt tækni og vísindum
    • nýta sér heimildir samkvæmt reglum um notkun heimilda
    • nýta sér fagorðabækur og íðorðasöfn
    • skrifa formlega ritgerð með inngangi með efnisyrðingu, meginmáli og lokaorðum eða vinna sambærilegt lokaverkefni
    Gerð er grein fyrir námsmati og sundurliðun þess í námsáætlun.