Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1668003625.01

    Íslenska
    ÍSLE2LR05(ms)
    37
    íslenska
    lestur og ritun
    for inspection
    2
    5
    ms
    Læsi, ritun og framsögn verða meginatriði þessa byrjunaráfanga. Lögð er áhersla á lestur fjölbreyttra texta, byggingu hvers kyns ritsmíða og frágang þeirra og munnlega tjáningu. Nemendur kynnast sögu tungumálsins, lesa valdar nútímaskáldsögur og fá þjálfun í notkun bókmenntahugtaka. Lögð er áhersla á að nemendur nái góðri færni í lesskilningi og stafsetningu. Einnig fá nemendur þjálfun í margvíslegri textagerð, meðferð og skráningu heimilda, gerð heimildaritgerðar og skapandi skrifum.
    Einkunn B á grunnskólaprófi eða ÍSLE1GR05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi lestrar og helstu aðferðum til að auka leshraða og -skilning
    • gildi góðrar framsetningar í ræðu og riti
    • völdum nútímaskáldsögum og grunnhugtökum í bókmenntafræði
    • samhengi tungumáls og menningar
    • meðferð og skráningu heimilda
    • bókmenntatextum sem tengjast ýmsum sviðum mannlífsins og málefnum líðandi stundar
    • helstu hugtökum í ritgerðasmíð
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa sér til gagns og gamans, með auknum leshraða og -skilningi
    • skrifa margvíslega texta, svo sem fréttir, viðtöl, útdrætti og örsögur
    • skrifa heimildaritgerð
    • temja sér vönduð vinnubrögð við ritsmíðar og leggja rækt við ritunarferlið
    • ræða um þróun íslenskrar tungu og gildi tungumálsins fyrir íslenskt samfélag
    • nota viðeigandi hjálpargögn við ritsmíðar
    • temja sér aðferðir við að rýna í margvíslega texta
    • skrá heimildir og vísa í þær samkvæmt reglum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita grunnhugtökum í bókmenntafræði við umfjöllun um skáldverk
    • fjalla um og túlka nútímaskáldsögur og tengja við eigin reynsluheim
    • auka og bæta við orðaforða sinn og málskilning
    • skrifa vandaðan texta á lýtalausu og blæbrigðaríku máli
    • tjá sig um þróun tungumálsins og gildi þess fyrir samfélagið
    • tjá sig í ræðu og riti um ýmsa bókmenntatexta
    • vinna að fjölbreyttum verkefnum í tengslum við námsefnið
    Gerð er grein fyrir námsmati og sundurliðun þess í námsáætlun.