Í þessum áfanga kynnast nemendur höfuðverkum íslenskra bókmennta frá 1550-2000 með áherslu á verk nokkurra höfuðskálda. Nemendur fá þjálfun í greiningu ljóða og lausamáls og lesa vandlega valin skáldverk. Einnig fá nemendur þjálfun í ritun þar sem lögð er áhersla á rökstudda og gagnrýna afstöðu þeirra til viðfangsefnisins.
ÍSLE2FB05 eða sambærilegur áfangi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
völdum bókmenntum frá tímabilinu
helstu straumum og stefnum, nokkrum höfundum og verkum í íslenskri bókmenntasögu
hlut kvenna í bókmenntum og bókmenntasögu
algengum bragreglum og bragarháttum
myndmáli og stílbrögðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina bókmenntatexta frá ýmsum tímum
lesa og túlka bókmenntir með gagnrýnum augum
tjá sig í ræðu og riti um valin verk, höfunda og stefnur tímabilsins
skilja, greina og beita myndmáli og stílbrögðum
fjalla ítarlega um einkenni og stíl valinna verka
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina áhrif helstu strauma og stefna á höfunda og verk frá ýmsum tímum
gera sér grein fyrir hlutverki bókmennta í samfélaginu og áhrifum þeirra á einstaklinga og samfélag
beita bókmenntahugtökum til að greina hvers kyns texta
setja fram mál sitt í ræðu og riti á gagnrýninn og rökstuddan hátt
kynna skáld og skáldskap á frumlegan og skapandi hátt
Gerð er grein fyrir námsmati og sundurliðun þess í námsáætlun.