Valgreinin er ætluð nemendum sem hafa áhuga á bókmenntum. Megináhersla er lögð á skilning og að nemendur lesi sér til uppbyggingar og ánægju. Áfanganum er ætlað að auka lestur nemenda á bókmenntaverkum, bæði klassískum og dægurbókmenntum. Bækur verða ákveðnar eftir áhugasviði nemenda en í samráði við kennara. Allir nemendur skulu lesa a.m.k. tvær bækur sem talist geti til „heimsbókmennta“. Kennari útbýr leiðbeinandi leslista með tillögum en nemendur verða að bera þau verk sem ekki eru á lista undir kennara.
ÍSLE2HB05(ms)
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu bókmenntahugtökum
þekktum verkum úr bókmenntasögunni
mikilvægi skipulags og sjálfsábyrgðar í námi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna sjálfstætt
skipuleggja sig
útbúa eigið lestrar- og námsskipulag og standa við það
tjá sig á skipulagðan hátt um innihald valdra bókmenntaverka, bæði skriflega og munnlega
nota helstu hugtök bómenntagreiningar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
njóta þeirra bókmennta sem hann les í framtíðinni og geta sett þær í stærra samhengi
tjá sig um bókmenntir á skipulagðan hátt
greina bókmenntir á fræðilegan hátt
sýna frumkvæði
Gerð er grein fyrir námsmati og sundurliðun þess í námsáætlun.